Ekki eins saklaus og hann sýnist vera.

Hann varð fyrir barðinu á hinum smjörgreidda Ronaldo. Hann leynir á sér leikarinn og á það til að vera hættulegur öðrum meðan hann stendur í lappirnar.
mbl.is Parker frá næstu vikurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott hjá varaliðinu.

Gott hjá varaliði West Ham að fá 15 marktækifæri og 7 hornspyrnur á móti aðalliði Arsenal og að vera undir eftir fyrri hálfleikinn var ekki sanngjörn staða. En sanngjarn sigur þó hjá Arsenal í dag.
mbl.is Arsenal heldur tveggja stiga forskoti á toppnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var furðulegt Ferguson.

Tevez fær höfðingjalegar móttökur, Tevez fagnar ekki ef hann skorar,eykur United forskot sitt í dag og Ferguson hvílir Rooney á móti West ham í dag.........................svona voru fyrirsagnir blaðana fyrir leikinn í dag. Ég vissi allann tímann hvernig fyrisögnin yrði# EKKERT VIÐ ÞESSU AÐ SEGJA, ÞEIR ERU BARA BETRI EN VIÐ......................Sagði Ferguson eftir leik........
mbl.is Ferguson: Ekkert við þessu að segja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraðlestin er á sporinu.

Keflvíkingar áfram á sigurgöngu. Næsti leikur liðsins verður stór en þá koma heildsalasynirnir úr vesturbænum í heimsókn. Fullt hús, svakastuð og sætur heimasigur að sjálfsögðu.


mbl.is KR vann Njarðvík á þriggja stiga flautukörfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt skal vera rétt............

Leikurinn fór 95-70 en ekki 90-75. Fyrsta sætið staðreynd. Hraðlestin komin á sporið.
mbl.is Borgnesingar réðu ekki við Karadzovski
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraðlestin hefur leik í kvöld.

Já gott fólk hraðlestin fer á stað í kvöld og fyrsta sérleið er UMFG en gert er ráð fyrir vandræðalausu stoppi. Lestarstjóri verður Siggi Ingimundur og aðrir starfsmenn verða liðsmenn Keflavíkur í körfu. Ekki slæmt að hefja för með Umfg en þeir ætla sér stóra hluti í vetur með Geysir Green í fararbroddi en þeir ætla að kynda undir með Umfg í vetur og halda möguleikunum heitum þar í bæ. En við í Keflavík þekkjum og erum meðvitaðir um styrk okkar, svo við mætum fullir bjartsýni til leiks. Menn munu þurfa að gleypa stóru orðin sín feitt í vetur en að spá Njarðvík og Keflavík 4 og 5 sætinu í vetur er hlægilegt og er eingöngu óskhyggja og hefur ekkert með raunsæi eða þekkingu á körfubolta að gera. Bið ykkur vel að lifa, frábært að karfan er byrjuð á nýjan leik. Kv. Einar Sk.

Írskur landsliðsmaður til liðs við Keflavík.

Það er mikið að maður heyrir fréttir frá mínu liði. Írskur leikmaður Colin O´Reilly er kominn og vonandi fleiri á leiðinni, ekki veitir af því Kr-ingar eru komnir með feikilega öflugt lið sem og Grindjánarnir. En ég hef fulla trú á mínum mönnum og spái þeim öllum þeim titlum sem í boði eru. Þurfa bara að hafa örlítið meira fyrir því í ár. Körfukveðja Einar Sk. 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband